Fór á GEÐVEIKA tónleika með INCUBUS á laugardaginn!!!
újjeee..!!!! Finnur stakk mig reyndar af í byrjun tónleikanna
þannig að ég náði ekki að njóta þeirra með honum, en hoppaði,
svitnaði og öskraði úr mér röddina með Stebba, Beitir, Vigga og
Guðna í staðin 

En já.. ég ákvað að rifja upp skemmtilegar minningar í þessu
bloggi, fann reyndar ekki nógu margar myndir þannig að ég gæti pínt
sem flesta þannig að það koma bara fleiri seinna, get lofað ykkur
því.. múahahahh!!!!!

Fyrsta verslunarmannahelgardjammið okkar Huldu!!! það var sko
Sweet!! Galtalækur.. hahahah
í 10. bekk
Ungar og ferskar
þarna!!! hahahha

Hrafnhildur, Hulda, Bexý og Kristín.. Ég og Hulda vorum víst of
miklar gelgjur til að geta orðið kalt.. hehehe 

Svo varð ég að skella inn þessari.. vængefið sæt... Anna KAtrín
og Marta að undirbúa sig fyrir svefnin í kórbúðum... JÁ maður var
sko SAKLAUS!!!!
Já.... SVO urðu stelpurnar frægar.. hehehe 

Hulda, Adda og Bexý fyrsta skóladaginn í 10. bekk í snæló..
hahahaha !! ÝKT krútt!! Komum meira að segja í
Kópavogspóstinum!!

Svo voru Bexý og Geirný píndar á busadaginn í FB..!! Var svo
heppin að koma í skólanlaðinu með kókosbollu í andlitinu!!! Gaman
að byrja í nýjum skóla.. hahahaha 

En... svo urðu stúlkukindirnar nógu gamlar til að fara á tjúttið
og voru ekki lengi að koma sér fyrir í Morgunblaðinu.. Hahahha En
SKEMMTÓ!!!! En já á myndinni eru Elín, Emelía og Bexý 

Og ekki má gleyma Benedorm ferðinni þar sem að farið var með
Emelíu í rússíbana og þar gret hún eins og smástelpa litla
greyið!!! Talið fra neðan, Erla, Bexý, Emelía þar á bakvið og
svo Garðar!!! Brjáluð SNILLD!!!! Gleymist seint!!
En já svo lofa ég ykkur fleiri myndum bráðum.. ætla að vera
dugleg að gramsa þar sem að það er nú kominn skanni á heimilið

Lifið heil.. Bexý í æskuminningum!!!